512 3400 Hafa Samband
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með lyftu
3 herb.
65 m²
47.100.000 Kr
Tegund:
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með lyftu
Stærð:
65 fm
Herbergi:
3
Stofur:
1
Svefnherbergi:
2
Baðherbergi:
1
Inngangur:
Sameig.
Byggingaár:
2022
Lyfta:
Brunabótamat:
38.700.000
Fasteignamat:
43.800.000
Lýsing

HLUTDEILDARLÁN - Ný íbúð til sölu á Akranesi LAUS STRAX. Þriggja herbergja íbúð á  annari hæð. Íbúðin er með tveimur svefnherbergjum, og er í fjórtán íbúða lyftuhúsi á þremur hæðum við Asparskóga 6. Sameiginlegur inngangur, stigahús og lyfta. Íbúðin fellur undir skilmála HMS um stærðir og verð fyrir Hlutdeildarlán.Nánari upplýsingar um hlutdeildarlán

Til afhendingar við kaupsamning.

Við kaup með Hlutdeildarláni þarf kaupandi einungis að greiða 5% kaupverðs, eða 2,4mkr. við kaup á þessari íbúð. Einnig þarf að standast greiðslumat fyrir 75% húsnæðislán hjá fjármálastofnun eða banka. Hlutdeildarlán er 20% af kaupverðinu.

Íbúðin er afhent fullfrágengin að innan sem utan. Myndir eru úr tilbúnum, sambærilegum íbúðum í húsinu.

Eldhús: Voke-III eldhúsinnrétting með innbyggðum Electrolux heimilistækjum; innbyggðum ísskáp/frysti, innbyggðri uppþvottavél, helluborði og ofni og loftunarháf. Ljúflokur á skáphurðum. Plastlagðar borðplötur. 
Baðherbergi: Veggir og gólf eru flísalögð. Vegghengt WC og sturtuhorn (niðurföll í gólfi). Innrétting og vaskur/blöndunartæki. Tengi fyrir þvottavél á baði.
Gólfefni: Eikar-harðparket er á gangi og herbergjum, stofu og eldhúsi og geymslu
Geymsla er innan íbúðarinnar. Sameiginleg hjóla/vagnageymsla er á jarðhæð hússins.
Húshitun er með gólfhitakerfi (þráðlausir nemar).

Húsið og frágangur að utan:
Timburverönd er fyrir utan stofu á jarðhæð/svalir á efri hæðum. Bílastæði eru malbikuð/hellulögð, og lóðin tyrfð að öðru leyti.
Húsið er timburhúse, og er framleitt samkvæmt ISO9001 gæðakerfinu.
Framleiðandi hússins hefur jafnframt vottuð umhverfisstjórnunarkerfi samkvæmt ISO14001 og ISO45001 um heilbrigði og öryggi á vinnustað.
Að utan er húsið er klætt með lóðréttri timburklæðningu, þakið er með tvöföldum asfaltdúk. Gluggar eru PVC (plast).

Frágangur að innan:
Í útveggjum og innveggjum eru pressaðar FERMACELL trefjaplötur sem er harðara og þyngra efni en gifs. Hægt er að hengja flestar innréttingar, hillur, myndir og þess háttar í þessar plötur án sérstakra festinga. Í votrýmum eru notaðar AQUAPANEL plötur sem er sementsblandaðar plötur sem þola raka mun betur en hefðbundið rakavarið gifs. Í loftum er tvöföld gifsklæðning og rakavarið gifs í loftum votrýma.
Sameign er teppalögð og stigi milli hæða er með steinþrepum. Hjóla/vagnageymsla í sameign er flísalögð. Í húsinu er vatnsúðarakerfi/sprinkler.

Þar sem um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald 0,3% af brunabótamati sem gert er upp við afsal.

Nánari upplýsingar veitir Guðlaug Halldórs, löggiltur fasteignasali, hjá Fasteignasölunni Bæ í síma 848-6680 eða [email protected].  Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Fasteignasalan Bær því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Allar upplýsinar veitir Guðlaug í 8486680 og [email protected]

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati, lögaðilar 1,6%
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. kauptilboð
 

Tengiliður

Hefurðu áhuga vita meira um þessa eign?

Skilaboð hafa verið send.
Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.