Hringbraut 83, 101 Reykjavík (Miðbær)
119.800.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi.
5 herb.
171 m2
119.800.000
Stofur
2
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
2
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
1939
Brunabótamat
73.800.000
Fasteignamat
109.200.000
Opið hús: 10. mars 2026 kl. 17:30 til 18:00.

Opið hús: Hringbraut 83, 101 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 02 01. Eignin verður sýnd þriðjudaginn 10. mars 2026 milli kl. 17:30 og kl. 18:00. Starfsmenn fasteignasölunnar taka á móti ykkur.

Fasteignasalan BÆR, Auður & Ólafur kynna: rúmgóða og bjarta 5 herbergja íbúð á 2. hæð að Hringbraut 83 ásamt bílskúr, 101 Reykjavík.
  • > Endursteinað hús
  • > Stór eldhúsinnrétting
  • > Tvö baðherbergi
  • > Tvennar suðursvalir
  • > Bílskúr er 46 fm og býður upp á möguleika

Nánari lýsing:
Sameiginlegur inngangur með 1. hæð.
Stigi upp á 2 hæð. Fatahengi á stigapallinum.
Komið inn í hol, sem tengir saman öll rými íbúðarinnar, á hæðinni.
Eldhús: með rúmgóðri L-laga innréttingu og borðkrók.
Stofa: snýr að bakgarði. Hefur verið skipt upp og herbergi stúkað út úr stofunni. Auðvelt að breyta til baka. Svalir í suður.
Svefnherbergi: er bjart með hornglugga og fataskápum (stúkað úr stofu). Fataskáparnir eru lausir en mega fylgja.
Baðherbergi: klósett, handlaug & sturtuklefi. (Sýnt sem herbergi á teikningu.)
Stigi upp á rishæðina.
Herbergin eru 3 á rishæðinni: öll rúmgóð og eitt með súðarskápum. Hin tvö herbergin eru með góðum innbyggðum skápum. Svalir í suður.
Baðherbergi með baðkari og tengt fyrir þvottavél. Við hlið þvottavélatengis er einnig pláss fyrir þurrkara.
Holið á rishæðinni er með fataskáp.

Bílskúrinn er sérstæður með góða glugga inn að garðinum. Rafmagn og heitt vatn. Skúrinn er í dag frekar hrár en býður upp á mikla möguleika.
Sér geymsla á jarðhæðinni er köld.
Sameiginlegt þvottahús á jarðhæðinni.
Hægt að láta tengja fyrir rafbíl.

Lóðin er sameiginleg. Búið er að byggja pall og sameiginleg húsgögn á pallinum eru nýtt af íbúum hússins.

Lóðin er leigulóð. Lóðarleigusamningur er frá 2013 til 75 ára.
Eignin er skráð þannig hjá HMS: íbúð á hæð merkt 01-02-01, birt stærð er 125,1 fm byggt 1939. Íbúðarhluti á 2 hæð er skráð 75,5 fm og rishæð skráð 45,3 fm. Sér geymsla í kjallara er skráð 4,3 fm. Bílskúrinn er skráður 46 fm byggður 1950. Heildarstærð er 171,1 fm.

Samkvæmt upplýsingum frá fyrri eiganda:
Húsið og íbúðin eru talsvert endurnýjuð m.a. var húsið múrviðgert og endursteinað árið 2017 og á sama tíma var járn á þaki yfirfarið, viðgert og málað. Árið 2016 voru gluggar yfirfarnir og viðgerðir þar sem þurfti og settir nýjir álistar. Það ár var líka sett nýtt dren í kringum húsið að frátaldri suðurhlið þess en það var ekki talið þurfa. Frárennslislagnir eru endurnýjaðar út í nýjan brunn á lóðinni.  
Gólfhiti var lagður í íbúðina árið 2013 og þá voru einnig vatnslagnir endurnýjaðar og forhitari settur á neysluvatnið. Búið er að draga nýtt rafmagn í alla íbúðina og skipta um alla rofa og tengla. Einnig er rafmagnstafla í sameign endurnýjuð. Allar innihurðir eru nýlegar. 


Stutt í þjónustu, skóla og sundlaug.

Allar nánari upplýsingar veita:
Auður Sigr Kristinsdóttir löggiltur fasteignasali s 824-7772 & tölvupóstur [email protected] 
Ólafur Tr Thors löggiltur fasteignasali s 666-8-777 & tölvupóstur [email protected]
Auður & Ólafur eru í Félagi Fasteignasala.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% hjá einstaklingum og 1,6% hjá lögaðilum af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.                 
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. kauptilboð

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Fasteignasalan Bær því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þörf er á. 
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og til húsfélags, þegar um það er að ræða. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.  

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.