Opið hús: 05. mars 2026 kl. 17:30 til 18:00.Opið hús: Þorrasalir 13, 201 Kópavogur, Íbúð merkt: 01 06 03. Eignin verður sýnd fimmtudaginn 5. mars 2026 milli kl. 17:30 og kl. 18:00.
Guðbergur s 8936001 og fasteignasalan Bær kynna: Frábæra 3-4ra herbergja íbúð 102 fm á 6 hæð ásamt yfirbyggðum svölum með flottu útsýni og stæði í bílageymslu.
Eignin er laus við kaupsamning.
Nánari lýsing: Anddyri með flísum á gólfi og fataskáp.
Rúmgóð stofa með parket á gólfi og útgengi út á yfirbyggðar
stórar svalir með
frábæru útsýni. Eldhús sem tengist stofunni með góðri innréttingu, vandaðri stein borðplötu, góðu skápaplássi, helluborði, viftu, bökunarofni, innbyggðri uppþvottavél og ísskápur sem fylgir.
Svefnherbergin eru 2 með parket á gólfi og fataskápum.
Borðstofa með parket á gólfi (var áður svefnherbergi) tengist stofunni í dag.
Baðherbergi flísalagt í hólf og gólf, sturta, upphengt salerni, handklæðaofn, innrétting og skápar.
þvottaherbergi er inn af baðherbergi með tengi fyrir þvottavél og þurkara ásamt skápum.
Sér stæði í bílageymslu og hleðslustöð í stæði.
Sér geymsla og stór sameiginleg hjóla og vagnageymsla.
Húsið er snyrtilegt og með lyftu.Góð eign miðsvæðis, stutt í náttúruna og alla þjónustu, golfvöllur, fallegt útsýni og góð aðkoma.
Allar nánari upplýsingar veitir Guðbergur Guðbergsson löggiltur fasteignasali s 8936001. [email protected]