Opið hús: 05. febrúar 2026 kl. 17:30 til 18:00.Opið hús: Furugrund 74, 200 Kópavogur, Íbúð merkt: 02 02 03. Eignin verður sýnd fimmtudaginn 5. febrúar 2026 milli kl. 17:30 og kl. 18:00.
Fasteignasalan Bær og Páll Guðjónsson lögg. fasteignasali kynna: Rúmgóð, vel skipulögð og töluvert endurnýjuð 53,3 fm tveggja herbergja íbúð á annarri hæð við Furugrund 74, 200 Kópavogi. Eignin er í jaðri göngu- og útvistarsvæðis Fossvogsdals.Nánari lýsing:Komið er inn frá sameign í rúmgott hol með fatahengi á vinstri hönd, möguleiki að setja fataskáp í stað fatahengis. Á hægri hönd frá holi er eldhús með hvítri eldhúsinnréttingu ásamt tækjum og innbyggðri uppþvottavél. Svefnherbergið er með opnum nýlegum fataskáp. Baðherbergið er með ljósri eldri innréttingu, baðkar með sturtu og flísar á gólfi. Rúmgóð og björt stofa / borðstofa með útgengi út á góðar suður svalir. Á gólfum eignar er harðparket nema á baðherbergi, þar eru flísar. Eigninni fylgir sér geymsla í sameign ásamt sameiginlegu þvottahúsi og hjólageymslu.
Eldhúsinnrétting var endurnýjuð 2019 ásamt gólfefnum og rafkerfi var yfirfarið að hluta. Um er að ræða vel staðsetta eign í næsta nágrenni við göngu- og útivistarsvæði í Fossvogsdal.
Nánari upplýsingar gefur Páll Guðjónsson lögg. fasteignasali í síma 699 4994 eða á netfangið [email protected].Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt (en þó breytilegt) 1,0% af höfuðstól skuldabréfs.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr. kauptilboð.