Ásbraut 5, 200 Kópavogur
61.900.000 Kr.
Fjölbýli
3 herb.
70 m2
61.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
1960
Brunabótamat
35.150.000
Fasteignamat
50.800.000
Opið hús: 08. desember 2025 kl. 17:30 til 18:00.

Opið hús: Ásbraut 5, 200 Kópavogur, Íbúð merkt: 01 01 03. Eignin verður sýnd mánudaginn 8. desember 2025 milli kl. 17:30 og kl. 18:00.


Guðbergur og fasteignasalan Bær kynna: Fallega og vel skipulagða, mikið endurnýjaða þriggja herbergja íbúð 70 fm á fyrstu hæð að Ásbraut 5 í Kópavogi. 
Íbúðin skiptist í anddyri, tvö svefnherbergi, eldhús, stofu, svalir og baðherbergi. Þá fylgir íbúðinni jafnframt sér geymsla og hlutur í sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu.
   




Nánari lýsing:  Anddyri með Harðparket á gólfi og stórum fataskáp.
Eldhús: Snyrtileg hvít háglans innrétting, ofn í vinnuhæð og innbyggð kaffivél. Tengi fyrir uppþvottavél, flísar á gólfi.
Barnaherbergi: Harðparket á gólfi.
Hjónaherbergi: Rúmgott með harðparketi á gólfi og fataskáp.
Stofa: Opið og bjart rými, harðparket á gólfi og útgengt á góðar suður svalir.
Baðherbergi: Flísalagt með innréttingu við vask með efri og neðri skáp, upphengdu salerni og stórri sturtu með gleri.
Sérgeymsla íbúðar er í kjallara.
Þvottahús: Sameiginlegt þvottahús er í kjallara þar sem hver íbúð hefur sér tengi fyrir þvottavél.
Bílastæði: Stórt, sameiginlegt bílastæði er við húsið.

Nýlegar framkvæmdir:
 -2025   Stigagangur tekinn í gegn: málaður stigagangur, sett nýtt handrið á stigann,
              nýjar eldvarnahurðir í allar íbúðir, stigi teppalagður.
- 2022 - 2023: Skipt um nær alla glugga og gler í húsinu ásamt múrviðgerðum.
               Allir gluggar íbúðar eru nýir og með hljóðeinangrandi gleri.
- 2021: Dren lagt og lagfært.
- 2022: Rafmagn yfirfarið í íbúð.
- 2019: Nýjar innihurðir.
- 2015: Eldhús, baðherbergi og gólfefni endurnýjuð.
- 2006 - 2012: Skv. ástandsskýrslu frá árinu 2019 var skipt um þakjárn, þakrennur og niðurföll 2006, og húsið múrviðgert og endurmálað 2012.
Annað:
Um er að ræða frábærlega vel staðsetta eign í vesturbæ Kópavogs, en stutt er í alla helstu þjónustu, skóla og leikskóla.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.