Fasteignasalan Bær og Páll Guðjónsson kynna: Rúmgóð og björt fjögurra herbergja íbúð í fallegu 23 íbúða klasahúsi við Hæðargarð 1-27. Um er að ræða 100,7 fm. eign með sér inngangi. Arkitekt hússins er Vífill Magnússon. Glæsilegur verðlaunagarður er í miðju íbúðaklasans sem hannaður var af Stanislav Bohic landslagsarkitekt. Garðurinn er afar gróðursæll og skjólgóður með fjölmörgum trjátegundum sem blómstra til skiptis allt sumarið. Húsið er allt nýviðgert að utan. Búð er að endurnýja flesta glugga og gler eignar.Nánari lýsing:Komið er inn í litla forstofu og þaðan upp nokkrar tröppur upp á íbúðarhæð. Gangur með rúmgóðum skápum. Eldhús sem er opið inn í stofu/borðstofu er með eldri dökkri innréttingu með miklu borðplássi. Rúmgóð og björt stofa. Á svefnherbergisgangi eru þrjú rúmgóð svefnherbergi. Baðherbergi með eldri stórri dökkri innréttingu, baðkar með sturtu, flísalagt að hluta með ljósum flísum, tengt fyrir þvottavél. Lítil geymsla er við enda gangsins. Á gólfum eignar eru flísar á holi, stiga og baðherbergi en nýlegt harðparket á stofu, eldhúsi og herbergjum.
Næg bílastæði eru við húsið og hleðslustöðvar fyrir rafmagnsbíla. Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er á lóðinni.
Um er að ræða eign staðsetta miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu, göngufæri í alla helstu þjónustu eins og leik- og grunnskóla, verslunarkjarna í Skeifunni o.fl.Nánari upplýsingar gefur Páll Guðjónsson lögg. fasteignasali í síma 6994994 eða á netfangið [email protected]