Lindarberg 12, 221 Hafnarfjörður
155.000.000 Kr.
Raðhús/ Raðhús á tveimur hæðum
7 herb.
270 m2
155.000.000
Stofur
2
Svefnherbergi
5
Baðherbergi
3
Inngangur
Sér
Byggingaár
1991
Brunabótamat
106.500.000
Fasteignamat
118.950.000

Guðbergur og fasteignasalan Bær kynna: Glæsilegt 270 fm Raðhús með 6 svefnherbergjum, stóru eldhúsi, suðvestur svölum og tvöföldum bílskúr, með fallegu útsýni.

Nánari lýsing: Gott hús og mikið endurnýjað Anddyri með flísum á gólfi, fataskáp og fatahengi. Baðherbergi er inn af anddyri flísalagt í hólf og gólf og er með innréttingu, handklæðaofni, sturtuklefa og upphengdu klósetti.
Rúmgott hol með flísum á gólfi. Rúmgott eldhús með flísum á gólfi nýrri innréttingu og tækjum. Úr eldhúsi er útgengi á suður svalir. Rúmgóð stofa/borðstofa með flísum á gólfi og útgengi á suðvestur svalir með fallegu útsýni.
Svefnherbergin á hæðinni eru fjögur öll með parket á gólfum og fataskápum(eitt með fataherbergi). Stórt baðherbergi flísalagt í hólf og gólf, innrétting,baðkar með sturtu, handklæðaofn og upphengt klósett.  Þvottaherbergi þar sem eru í dag 2 þvottavélar og tveir þurkarar, skápar og skolvaskur. Steyptur og parketlagður stigi er á milli hæða, á neðri hæð er  sjónvarpshol (sem í dag er notað sem svefnherbergi), baðherbergi með innréttingu, sturtuklefa og klósetti.
Gott svefnherbergi með setustofu og fataskápum. Rúmgóður tvöfaldur bílskúr með máluðu gólfi, bílskúrshurðar og gönguhurð, úr skúr er stigi upp á efraloft þar sem er stór geymsla. Hellulagt bílastæði og verönd upphitað og á verönd er geymsluskúr.

Nýlegt viðhald : Allt nýtt í eldhúsi innréttingar og tæki, innréttingar á baðherbergi, nýjir miðstöðvar ofnar, ný aðaltafla rafmagns og ný málað þak og þakkantur, gólfefni herbergjum, skápar í herbergjum, netsnúrur í öll herbergi. 
Flott staðsettning, kyrrlát gata og flott umhverfi.


Allar nánari upplýsingar veitir Guðbergur Guðbergsson löggiltur fasteignasali s 8936001 [email protected]

 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.