Sílalækur 7, 800 Selfoss
86.900.000 Kr.
Parhús/ Parhús á einni hæð
4 herb.
142 m2
86.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
2020
Brunabótamat
74.070.000
Fasteignamat
73.200.000

FASTEIGNASALAN BÆR og Vilborg G Hansen lgf kynna:  Fallegt 4ra herbergja 117.3 fm parhús ásamt innangengum bílskúr 24.8 fm samtals eign 142.1 fm.  Steypt innkeyrsla og steypt stétt á bak við húsið.  Geymsluloft er yfir húsinu með góðri lofthæð.

Nánari upplýsingar hjá Vilborgu G. Hansen löggiltum fasteignasala sími 895-0303 eða [email protected]

ÍBÚÐ:  Komið inn á forstofugang þar sem er fataskápur. Gangur er með harðparket en af honum er gengið inn í tvö rúmgóð barnaherbergi með skápum og harðparketi.  Þvottahús er mjög rúmgott með innréttingu en úr þvottahúsi er niðurtekinn stigi upp á mjög gott geymsluloft yfir húsinu með góðri lofthæð.  Innangengt er úr þvottahúsi í bílskúr.  Baðherbergi er flísalagt með sturtu og góðri innréttingu.  Rúmgott hjónaherbergi með góðum skapum og harðparketi.  Í opnu rými er eldhús með hvítri innréttingu og eyju.  Innfeldur ísskápur og uppþvottavél.  Borðstofa og stofa með útgengi á steypta verönd á bak við húsið.  
BÍLSKÚR:  Góður 24.8 fm innangengur bílskúr með steyptu gólfi. Heitt og kalt vatn.  Inngönguhurð er á bílskúrshurð.
LÓÐ: lóðin er með grasi og steyptri innkeyrslu.  

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati, lögaðilar 1,6%
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. kauptilboð

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.