Hraunbraut 5, 200 Kópavogur
45.000.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi.
2 herb.
52 m2
45.000.000
Stofur
1
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
1955
Brunabótamat
24.650.000
Fasteignamat
39.950.000

Fasteignasalan BÆRAuður & Ólafur kynna: 2ja herbergja íbúð á 1 hæð í tvíbýlishúsi að Hraunbraut 5, 200 Kópavogi. Laus við kaupsamning.
 
​Nánari lýsing:
Hol: með opnum fataskáp.
Opið alrými stofu og eldhús með stórum gluggum og mikilli birtu.
Eldhús: er með innréttingu á heilum vegg. Veggflísar á milli skápa í innréttingunni. Eldavél og vifta. Pláss fyrir tvöfaldan ísskáp.
Stofa: er hjarta íbúðarinnar. Gert ráð fyrir borðstofu milli eldhús og stofu.
Hjónaherbergi: er með glugga og fataskápum.
Baðherbergi: er flísalagt á gólfi og veggjum að hluta. Klósett, handlaug/innrétting, sturtuklefi og handklæðaofn.
Plastparket er á gólfum nema á baðherbergi, þar eru flísar. 
Lofthæð innan íbúðar er 2,6 m.
Mjög vel skipulögð eign, þar sem hver fermeter nýtist til fulls.

Geymslur: eru tvær, báðar á hæðinni. Önnur er innan íbúðar og hin er undir stiga upp á efri hæð. Stærðir eru 3,7 fm og 1,7 fm samkvæmt teikningu. Miðað við málsetningar á teikningu virðast geymslur ekki vera inni í birtri stærð eignarinnar.

Sameiginlegt þvottahús á sömu hæð. 
Sameiginlegur garður. Bílastæði á lóð.

Teikning fyrir þessa íbúð er með textanum "KJALLARI". Eignin er skráð sem eign á 1 hæð hjá HMS; eign 010101.

Húsið stendur á rólegum stað innarlega í botngötu.
Vel staðsett eign miðsvæðis í bænum í göngufæri við leikskóla, grunnskóla ásamt verslunum og þjónustufyrirtækjum í Hamraborg og Nýbýlavegi.

Nánari upplýsingar veita:
Auður Sigr Kristinsdóttir [email protected] & s 824-7772
Ólafur Tryggvason Thors [email protected] & 666-8777

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% hjá einstaklingum og 1,6% hjá lögaðilum af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.                 4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. kauptilboð

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Fasteignasalan Bær því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þörf er á. 
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.  
 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.