Jónas H. Jónasson löggiltur fasteignasali og Fasteignasalan Bær kynna í einkasölu: Rúmgóða og vel skipulagða 3ja herbergja íbúð á 2. hæð á góðum stað í neðra Breiðholti með fallegu útsýni yfir Mjódina og Reykjavík. Íbúðin er 94.2m2 að stærð ásamt sér geymslu í kjallara sem 4.7m2, samtals 98.9m2.Nánari lýsing:Teppalögð sameign með stórum gluggum sem veita mikla birtu.
Hol með parket á gólfi.
Eldhús með kork á gólfi og innréttingu með miklu skápaplássi ásamt borðkrók og svölum í austur.
Björt og rúmgóð stofa/borðstofa með parket á gólfi og svölum í vestur með fallegu útýni.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, lítil innrétting með vaski og sturta í baði, tengi fyrir þvottavél og þurkara
Tvö svefnherbergi með parket á gólfi og fataskápar í öðru þeirra.
Sér geymsla inni í íbúð sem hægt er að nýta sem þvottahús, tengi fyrir þvottavél og þurkara til staðar.
Sér geymsla í kjallara ásamt sameiginlegu þvottahúsi og hjólageymslu.
Bak við hús er stór sameiginlegur garður með leikaðstöðu fyrir börn.
Búið að koma fyrir rafhleðslustöð.
Allar nánari upplýsingar veitir:
Jónas H. Jónasson lögglitur fasteignasali í síma 842-1520 eða á [email protected]
Ertu að fara selja, hafðu samband og ég mun vinna með þér í gegn um allt söluferlið.Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 1,0% af höfuðstól skuldabréfs. 4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.