Fjölbýli/ Einbýlishús á tveimur hæðum
8 herb.
230 m²
144.900.000 Kr
Tegund:
Fjölbýli/ Einbýlishús á tveimur hæðum
Stærð:
230 fm
Herbergi:
8
Stofur:
3
Svefnherbergi:
5
Baðherbergi:
2
Inngangur:
Sér
Byggingaár:
1985
Brunabótamat:
100.150.000
Fasteignamat:
128.400.000
Lýsing
Fasteignasalan Bær og Guðlaug lgfs. sími 8486680 kynna í einkasölu: Fallegt einbýlishús 230,1 fm á tveimur hæðum með bílskúr, 8 herbergi, 5 svefnherbergi, flott staðsetning. Upplagt fyrir stóra fjölskyldu.
Eignin er skráð samkvæmt Þjóðskrá Íslands 230,1 fm. Íbúð 191,9 og bílskúr 38,2 fm og skiptist hún í:
Á neðri hæð er svefnherbergi, stofa, borðstofa, eldhús, gestasnyrting, þvottahús og forstofa.
Forstofa með góðum fataskápum, flísar á gólfi. Hol með parketi. Falleg gestasnyrting endurnýjuð 2019. Stofa og borðstofa með eikarparketi, útgengt út á verönd og út í garð. Glæsilegt eldhús með hvítri innréttingu frá HTH og ljósri kvarts borðblötu, nýleg tæki, tveir ofnar, uppþvottavél, helluborð, háfur, tækjaskápur, flísar á gólfi og gólfhiti. Rennihurð milli eldhúss og borðstofu. Innfelld lýsing í lofti. Svefnherbergi með fataskápum. Þvottahús með tengi fyrir þvottavél og þurrkara, útgengi út á pall og út í afgirtan garð. Flísar eru á forstofu, gestasnyrtingu og eldhúsi. Gegnheilt, niðurlímt og olíuborið eikarparket er á holi, stofu og borðstofu.
Á efri hæð eru 4 svefnherbergi, sjónvarpshol, baðherbergi og geymsla.
Komið er upp bjartan stiga og í sjónvarpshol. Hjónaherbergi með fataskápum og útgengi út á stórar svalir. Svefnherbergi með parketi. Tvö samliggjandi svefnherbergi með opi á milli (sem hægt er að loka), fataskápur, parket á gólfi. Baðherbergi með baðkari og sturtuklefa, innréttingu með vaski og wc. Dúklagt gólf og hluti veggja flísalagt. Geymsla. Parket á gólfum á allri hæðinni nema baðherbergi er dúklagt.
Bílskúr er 38,2 fm með manngengu millilofti. Stórir gluggar í báðum endum.
Framkvæmdir sem gerðar hafa verið:
2021: Húsið málað að utan. Tenglar og rofar í stofu, eldhúsi og gangi á neðri hæð endurnýjaðir. Skipt um klósett á efri hæð.
2020: Gler svalahandrið sett upp. Þakkantur klæddur að neðan. Innfelld útilýsing og tenglar settir undir þakkant hringinn í kringum húsið.
2018/2019: Ný HTH eldhúsinntétting með hvítri innréttingu, gott skápapláss, tækjaskápur. Kvarts borðplöta frá Fígaró. Öll tæki endurnýjuð. Niðurtekið loft í eldhúsi með innfelldri lýsingu. Gólfhiti undir flísum í eldhúsi. Gestasnyrting á neðri hæð öll endurnýjuð. Allir ofnar í húsinu og bílskúrnum endurnýjaðir (nema í þvottahúsi).
2015: Þak íbúðarhúss og þak bílskúrs máluð.
Þetta er eign sem vert er að skoða á frábærum stað í Breiðholti þar sem stutt er í alla helstu þjónustu.
10 mín. gangur í skóla. 5 mín gangur í leikskóla. Krónan í 5. mín. göngufæri. Fjölbraut í Breiðholti nálægt.
Góðar hjólaleiðir nálægt t.d. í Elliðaárdal, Árbæjarlaug og Breiðholtsslaug.
Fasteignamat 2024 er 128.400.000
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Bær fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati, lögaðili greiðir 1,6%
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Nánari upplýsingar gefur Guðlaug, Löggiltur fasteignasali, S:8486680, [email protected]

Tengiliður