512 3400 Hafa Samband
Fjölbýli/ Tvíbýli
3 herb.
110 m²
54.900.000 Kr
Tegund:
Fjölbýli/ Tvíbýli
Stærð:
110 fm
Herbergi:
3
Stofur:
1
Svefnherbergi:
2
Baðherbergi:
1
Inngangur:
Sér
Byggingaár:
1945
Brunabótamat:
45.070.000
Fasteignamat:
46.100.000
Lýsing


*MIKIÐ ENDURNÝJUÐ ÍBÚÐ Á JARÐHÆÐ MEÐ SÉR INNGANGI ÁSAMT SÉRSTÆÐUM BÍLSKÚR*
*FRÁBÆR STAÐSETNING*


Fasteignasalan Bær og Oliver Daði Duffield, löggildur fasteignasali, í síma 8665085 kynna: 3ja herb. neðri sérhæð í tvíbýli, ásamt rúmgóðum sérstæðum bílskúr.  Samkvæmt Fasteignaskrá Íslands er íbúð 73,8 fm. og bílskúr 37 fm., eða samtals 110,8 fm. Búið er að samþykkta teikningu fyrir palli þar sem gengið er út í garðinn. Íbúðin hefur verið mikið endurnýjuð að innan.  Húsið var nýlega múrað að utan á þremur hliðum.

Eignin skiptist í andyri, baðherbergi, svefnherbergi, gang, eldhús, stofu, tvö svefnherbergi, sérgeymslu og skúr.

Nánari lýsing:
Andyri er flísalagt og er opið inn i gang. Á vinstri hönd i andyri er gengið inn á baðherbergi, Stór sturtuklefi, tengi fyrir þvottavél, handklæðaofn og upphengt klósett bakvið hurð. Á hægri hönd frá andyri er rúmgott svefnherbergi með fataskáp. Á vinstri hönd frá gangi er gengið inn í eldhús, endurnýjuð innrétting, keramikhelluborð og tengi fyrir uppþvottavél. Á vinstri hönd áfram með gangi er annað svefnherbergi sem er skráð á teikningu sem vinnuherbergi/geymsla. Á hægri hönd er svo gengið inn í stofu sem er opin inn i ganginn. Út frá stofu er svo útgengt í sameiginlegan garð. Á enda gangsins er svo geymsla. Rúmgóður sérrstæður bílskúr/geymsla er með gönguhurð, tengi fyrir rafmagn og hita, en verið er að vinna í að skipta um þak, klæðningu og einangrun að innan, að sögn seljanda. Á gólfum íbúðar er harðparket, nema í eldhúsi, baðherbergi og andyri en þar eru flísar.

Nánari upplýsingar veitir Oliver Daði Duffield, löggildur fasteignasali, í síma 8665085 eða á tölvupóstfangi [email protected]

Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Bær vill því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4 til 0,8% hjá einstaklingum og 1,6% hjá lögaðilum af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. kauptilboð.

Tengiliður

Hefurðu áhuga vita meira um þessa eign?

Skilaboð hafa verið send.
Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.