Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi.
3 herb.
80 m²
68.800.000 Kr
Tegund:
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi.
Stærð:
80 fm
Herbergi:
3
Stofur:
1
Svefnherbergi:
2
Baðherbergi:
2
Inngangur:
Sameig.
Byggingaár:
1942
Brunabótamat:
34.200.000
Fasteignamat:
54.050.000
Lýsing
Fasteignasalan BÆR, Auður & Ólafur kynna: rúmgóða 3ja herbergja íbúð í Meðalholti 19, 1. hæð ásamt útleigueiningu í kjallara og óskráðum geymsluskúr á baklóð.
Nánari lýsing:
Íbúðin er á 1 hæð. Komið er inn á gang með fataskáp. Eldhús er með innréttingu, barborði & tengt fyrir uppþvottavél. Stofa er rúmgóð með glugga í suður. Tvö rúmgóð herbergi, annað þeirra með innbyggðum skápum. Baðherbergi er með flísar á gólfi og veggjum að hluta, klósetti, sturtu og glugga.
Leigueining í kjallara.
Þvottahús í sameign í kjallara.
Eignin er skráð þannig hjá HMS: Húsið stendur á 562,5 fm leigulóð og er byggt 1942. Birt stærð eignar er 80,6 fm. Þar af er íbúð á 1 hæð 60,6 fm. Geymslur í kjallara eru skráðar 2: önnur 16,7 fm og hin 3,2 fm. Í sameign austurhluta hússins er skráð þurrkherbergi og þvottahús ásamt útigeymslu undir tröppum.
Nýting kjallara:
Stærri geymslan í kjallara hefur verið innréttuð sem íbúðarherbergi með eldhúshorni.
Í þessum hluta húsins hefur verið samkomulag um sér nýtingu sameignar hvað varðar þurrkherbergið og þvottahúsið. Íbúðin á 1 hæð hefur því nýtt þurrkhúsið og þar er í dag baðherbergi með upphengdu klósetti, handklæðaofn og tengt fyrir þvottavél.
Rýmið í kjallara hefur verið leigt sér sem íbúðarherbergi, baðherbergi með þvottaaðstöðu og geymsla. Sér inngangur er í kjallarann.
Íbúðin er laus við kaupsamning en útleigueining í kjallara er í útleigu.
Geymsluskúr á baklóð ca 7,5 fm er ekki inni í birtri stærð.
Lítill stigagangur er með sameiginlegan inngang fyrir 2 íbúðir í húsinu. Sér inngangur í kjallara fyrir útleigueiningarnar.
Heitur pottur er í sameign austurhluta hússins í garði innan skjólgirðingar.
Góð staðsetning á rólegum stað, en í örstuttu göngufæri við mannlíf, veitingastaði & verslanir í miðbænum.
Allar nánari upplýsingar veita:
Auður Sigr Kristinsdóttir löggiltur fasteignasali s 824-7772 / [email protected]
Ólafur Tr. Thors löggiltur fasteignasali s 666-8-777 / [email protected]
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% hjá einstaklingum og 1,6% hjá lögaðilum af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. kauptilboð
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Fasteignasalan Bær því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þörf er á.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og til húsfélags, þegar um það er að ræða. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Tengiliður