512 3400 Hafa Samband
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með lyftu
2 herb.
62 m²
61.900.000 Kr
Tegund:
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með lyftu
Stærð:
62 fm
Herbergi:
2
Stofur:
1
Svefnherbergi:
1
Baðherbergi:
1
Inngangur:
Sameig.
Byggingaár:
2022
Lyfta:
Brunabótamat:
0
Fasteignamat:
5.060.000
Lýsing
Opið hús: 30. mars 2023 kl. 17:00 til 17:30.

Tekið á móti fólki við innganginn að Smyrilshlíð 18.

Fasteignasalan Bær kynnir:Íbúð 0305 er 2 herbergja 62,5 fm að stærð. Staðsett á þriðju hæð með 5,6 fm austursvölum. Sér bílastæði merkt B45.
Nánari lýsing:

Komið er inn frá sameign í rúmgóða forstofu með fataskáp. Eldhúsinnrétting er hvít frá GKS. Raftæki í eldhúsi eru frá AEG; kæliskápur með frysti, uppþvottavél, spanhelluborð og bakaraofn undir helluborði. Eyjuháfur yfir helluborði. Eldhúsvaskur, stál eða svartur eftir því sem við á, og blöndunartæki í sama lit. Í baðherbergi er upphengt salerni með hæglokandi setu. Innréttingar eru hvítar, skúffur undir handlaug. Kringlóttur spegill með baklýsingu er yfir handlaug. Handklæðaofn og lokaður sturtuklefi. Veggir með ljósum flísum. Tengi fyrir þvottavél í baðherbergi. Hvítir PAX fataskápar eru í forstofu og svefnherbergjum. Gólefni íbúðar eru ljóst harðparket, en gegnheilar flísar á votrýmum.
Hurðir og karmar eru annað harðplasteikarhurðir eða hvítar, sólbekkir eru þar sem við á, hvítir og plastlagðir. Eigninni fylgir sér geymsla í kjallara. Sérmerkt bílastæði í lokuðu bílastæðahúsi. Í bílastæðahúsi er uppsett grunnkerfi fyrir rafbílahleðslu.
Ljósleiðari er dreginn í tengikassa hverrar íbúðar.
Smyrilshlíð 18 er 4 hæða lyftuhús með 17 íbúðum, auk kjallara með sérgeymslum og bílastæðum og bílskúrum þar sem við á. Aðalhönnuður er KRark, Kristinn Ragnarsson arkitekt. Innangengt er úr bílageymslu inn í stigagang. Á jarðhæð er aðalinngangur hússins, póstkassar og mynddyrasímar eru í anddyri. Úr anddyri er gengið inn í stigahús að lyftu ásamt sérgeymslum íbúða. Húsið afhendist fullbúið að utan, ásamt lóð og bílastæði. Þak er steinsteypt með ásoðnum tjörupappa og einangrað með þrýstieinangrun (Roofmate), pallar og gras er á þakgörðum en grjót á öðrum svæðum. Svalir eru staðsteyptar, svalahandrið úr álprófílum og gleri og svalagólf með viðarstiklum. Húsið er fulleinangrað að utan og klætt með álklæðningu. Gluggar og hurðir eru úr timbri, málaðir að innan en áklæddir að utan. Bílastæði eru malbikuð og hitalögn er í gagnstéttum. Sorpgeymslur eru niðurfelldar í gangstéttar við götu.

Heimasíða Hlíðarenda
Nánari upplýsingar gefur Páll Guðjónsson í síma 699 4994 eða á netfangið [email protected]

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% hjá einstaklingum og 1,6% hjá lögaðilum af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.                 
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. kauptilboð

Tengiliður

Hefurðu áhuga vita meira um þessa eign?

Skilaboð hafa verið send.
Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.