512 3400 Hafa Samband
Raðhús/ Raðhús á einni hæð
6 herb.
236 m²
175.000.000 Kr
Tegund:
Raðhús/ Raðhús á einni hæð
Stærð:
236 fm
Herbergi:
6
Stofur:
2
Svefnherbergi:
4
Baðherbergi:
2
Inngangur:
Sér
Byggingaár:
1969
Brunabótamat:
75.550.000
Fasteignamat:
115.250.000
Lýsing

Fasteignasalan BÆR, Auður & Ólafur kynna: 6 herbergja vel skipulagt enda keðjuhús við Brúarflöt 6 á eftirsóttum stað á Flötunum í Garðabæ. 
 
§  Húsið er mjög mikið endurnýjað og hvergi til sparað.
§  Drápuhlíðargrjót og arinn.
§  Óvenju stór lóð 1620 fm.
§  Stórt upphitað bílaplan.


Arinn í stofu umkringdur Drápuhlíðargrjóti sem þekur einnig valda veggi í stofum.

Loftin eru niðurtekin og innbyggð halógen lýsing er í húsinu.  Mjög falleg næturlýsing er á göngum, baði og eldhúsi sem og á verönd og bílastæði.  Stórir gluggar tryggja sérlega bjart húsnæði. Í húsinu er að finna 44,7 fm upphitaða sólstofu sem bíður upp á mikla möguleika. 


Að aftan er ný uppgerð verönd á þremur pöllum með smekklegri lýsingu og þar er einnig heitur pottur.  Garðurinn er þakinn gróðri á sumrin og sólpallarnir bjóða upp á gott einka afdrep og næði.  Þetta eru 3 samliggjandi sólpallar sem samtals eru 59,2 fm. Lóðin er óvenju stór eða 1620 fm, samkvæmt skráningu HMS.

Bílaplanið er um 200 fm og rúmar auðveldlega sex til sjö bíla.  Planið var steypt árið 2022 og er allt upphitað, ásamt tröppum  að húsinu. Hleðslustöð fyrir rafbíla er vegghengd. Steypt stæði er að finna við hlið bílskúrs til notkunar sem geymslustæði og búið að teikna lokun yfir það.
​​​​
Að sögn seljenda voru settir nýir fataskápar, hurðir og innréttingar frá Brúnás á árunum 2011 – 2016. Á sama tíma var sett nýtt eldhús, nýtt rafmagn (ný rafmagnstafla) og hitakerfi endurnýjað en húsið er með gólfhita. Skipt hefur verið um þak og parket í sólstofunni á síðustu fimm árum. Búið er að skipta um flesta glugga í húsinu að undanskildum gluggum á framhlíð sem eru í pöntun og fylgja með. 

 
Nánari lýsing:
Anddyri: með gólfflísum og rúmgóðum fataskápum.
Eldhús: er með fallegri eldhúsinnréttingu frá Brúnás með góðu skápaplássi og granit borðplötu. Vönduð tæki frá AEG; span helluborð, háfur, ofn, ásamt vaski og tengt fyrir uppþvottavél. 
Stofa: er mjög rúmgóð og björt með útgöngudyr á baklóð. Þar eru 3 stórir samliggjandi sólpallar, sem eru samtals 59,2 fm og skjólgóður garður ásamt heitum potti
Tómastundastofa/sólstofa: er stór og björt með útgöngudyr á baklóð.
Baðherbergi: með flísum á gólfi og veggjum. Upphengt klósett, innrétting og baðkar með sturtu.
Hjónaherbergi: með fataherbergi. 
Svefnherbergi eru 3 til viðbótar við hjónaherbergi: eitt forstofuherbergi og tvö á svefnherbergjagangi.
Þvottahús: vaskur, tengt fyrir þvottavél og þurrkara. Málað gólf.
Gólfefni: parket nema flísar í anddyri, baðherbergi & forstofuherbergi. 

Tvöfaldur bílskúr er 40,6 fm samkvæmt skráningu HMS. Bílskúrinn er nýttur í dag sem geymsla í fremri hluta. Aftari hlutinn hefur verið nýttur sem unglingaherbergi með sér baðherbergi. Sér inngönguhurð er aftan á bílskúrnum inn í herbergið. Þetta herbergi er til viðbótar 6 herbergja húsinu.

Samkvæmt upplýsingum frá seljendum hefur eftirfarandi verið gert:
Húsið og þak var málað 2022, raunar varð eftir einn veggur í bakgarði og ein umferð á þaki og munu seljendur klára þakið. Þá var skorsteinn klæddur árið 2021. Framhlið hússins hefur öll verið tekin í gegn á síðustu fimm árum þ.m.t veggir múraðir upp á nýtt og nýjar rennur ásamt sedrus viði sem klæðir hluta framhliðar.
 
Fyrirhugaðar ósamþykktar arkitektarteikningar að endurbótum á húsinu (m.a. annað baðherbergi í aðalhúsi) geta fylgt með. 

Eignin er skráð þannig hjá HMS: íbúð 125,4 fm og bílskúr 40,6 fm, samtals 166 fm. Byggingarár hússins er 1969.
Húsið hefur verið teiknað upp samkvæmt núverandi útfærslu og er samkvæmt því í raun 236 fm. Það er í ferli að fá skráninguna leiðrétta. Athugið að fasteignamat byggir á skráningu hússins eins og það er í dag sem 166 fm.

Mjög vel skipulagt hús á einni hæð sem vert er að skoða.
Flataskóli, leikskólinn Kirkjuból og tónlistaskóli Garðabæjar eru í hverfinu. Verslanir, veitingastaðir og þjónustufyrirtæki eru líka í hverfinu.

Allar nánari upplýsingar veita:
Auður Sigr Kristinsdóttir s 824-7772 & tölvupóstur [email protected] 
Ólafur Tr Thors s 666-8-777 & tölvupóstur [email protected]

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% hjá einstaklingum og 1,6% hjá lögaðilum af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.                 
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. kauptilboð

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Fasteignasalan Bær því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þörf er á. 
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og til húsfélags, þegar um það er að ræða. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.  

Tengiliður

Hefurðu áhuga vita meira um þessa eign?

Skilaboð hafa verið send.
Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.