Fasteignasalan Bær og Snorri Sigurfinnsson lgf kynna í einkasölu. Snyrtileg þriggja herbergja íbúð, 88,9 fm á annari hæð með sérgeymslu í kjallara.Snyrtileg sameiginleg lóð með leikvelli.
Nánari lýsing: Opin flísalögð
forstofa. Rúmgóð
stofa og
borðstofa í opnu rými. Útgengt úr stofu á suður
svalir. Eldhús með vegginnréttingu og lausum skápum á millivegg.
Þvottahús/geymsla inn af eldhúsi Á
herbergjagangi er fataskápur. Tvö
herbergi með fataskápum. Á gólfum er parket og korkflísar á eldhúsi.
Baðherbergi er flísalagt i hólf og gólf. Baðkar með sturtuaðstöðu, einföld innrétting. Nýtt klósett.
Í kjallara er
hjólageymsla í sameign og
þurrkherbergi.
Sérgeymsla er 8,5 fm. og er með hillum.
Nýlegt járn er á þaki hússins og samþykkt er að mála húsið í sumar og liggur kostnaður fyrir og greiðist hlutur íbúðarinnar af seljanda.
Nánari upplýsingar veitir Snorri Sigurfinnsson löggiltur fasteignasali s. 864-8090 eða snorri@fasteignasalan.is
Bókið skoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati, fyrstu kaupendur 0,4%, lögaðilar 1,6%
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. kauptilboð
Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Fasteignasalan Bær því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.