Loftur Erlingsson löggiltur fasteignasali og Fasteignasalan Bær kynna í einkasölu:Gott 4herb. miðju raðhús með palli, heitum potti og góðum bílskúr sem er leigður út sem stúdíóíbúð, - frábær staðsetning. Komið er inn í rúmgóða flísalagða
forstofu með stórum skáp fyrir yfirhafnir og gengt þaðan inn í
þvottahús/geymslu með ágætu hilluplássi. Þá
gangur, stofa og eldhús inn til hægri og
svefn- og baðherbergi á vinstri hönd.
Stofa og eldhús í sameiginlegu opnu rými en eldhús hólfað frá með naglföstum skenk sem hægt er að sitja við.
Eldhúsið var endurnýjað 2018 en þá var sett ný innrétting frá IKEA með skúffukerfi í neðri skápum, helluborði og innfelldum ísskáp og uppþvottavél einnig þaðan og bakarofn frá Whirlpool, gólfið flísalagt og einnig settar flísar á milli skápa.
Stofan rúmgóð og gengt úr henni út á stóran pall með rafhituðum potti framan við húsið, lagnir til staðar til að tengja við heita vatnið. Harðparket á stofugólfi sem flæðir inn ganginn og inn í herbergin.
Svefnherbergin eru þrjú, tvö minni og ágætur skápur í öðru þeirra, og
hjónaherbergið stærst og með mesta skápaplássið, gengt þaðan út í garð bak við húsið.
Baðherbergið flísalagt í hólf og gólf, baðkar, upphengt klósett, vaskur og sturta með glerhurðum.
Bílskúrinn hefur verið leigður út sem stúdíóíbúð um skeið og er innréttaður sem slíkur, harðparket á gólfi og afstúkað klósett og sturtu.
Húsið er búið gólfhitakerfi. Að utan er það klætt með Steni klæðningu, gluggar og hurðir út tré og bárujárn á þaki. Lokafrágangur eftir á lóð bakvið húsið en góð afgirt grasflöt og pallur framan við húsið.
Eigulegt hús í alla staði.Nánari upplýsingar veitir Loftur Erlingsson lögg. fasteignasali í síma 896 9565 og loftur@fasteignasalan.is
Hringið og bókið skoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati, (0,4% fyrstu kaup) lögaðilar 1,6%
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. kauptilboð
Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Fasteignasalan Bær því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.