Opið hús: 18. janúar 2021 kl. 17:30 til 18:00.Opið hús: Austurströnd 4, 170 Seltjarnarnes, Íbúð merkt: 702. Eignin verður sýnd mánudaginn 18. janúar 2021 milli kl. 17:30 18:00.
Gestir mæti með andlitsgrímur. Spritt á staðnum.
*ÍBÚÐ Á 7. HÆÐ MEÐ ÚTSÝNI*
*STÆÐI Í BÍLAGEYMSLU*
Fasteignasalan Bær og Eggert Ólafsson, löggiltur fasteignasali, s: 893 1819, kynna vel skipulagða 3ja herbergja íbúð á 7. hæð í fjölbýli við sjávarsíðuna. Eignin er samtals 85,4 fm., auk stæðis í bílageymslu. Glæsilegt útsýni er til sjávar frá stofu og eldhúsi. Svalir snúa í suðvestur. Að sögn seljanda var húsið viðgert að utan fyrir ca. þremur árum og lyfta endurnýjuð. Frábær staðsetning og stutt í leikskóla, grunnskóla, íþróttafélag, verslanir, sundlaug, þjónustu og skemmtilegar gönguleiðir við sjávarsíðuna. Nánari lýsing:Anddyri: Með fataskáp.
Hol/sjónvarpshol: Rúmgott, með innangengt í aðrar vistarverur.
Stofa/borðstofa: Með útgengt á suðvestur svalir og glæsilegu útsýni.
Eldhús: Innrétting með viðaráferð, lítil borðuppþvottavél í innréttingu, vifta yfir keramikhellum og opið að hluta til inn í borðstofu/stofu.
Hjónaherbergi: Með fataskáp.
Barnaherbergi: Með fataskáp og nýlegu plastparketi.
Baðherbergi: Innrétting, baðkar með sturtustöng og flísar upp veggi.
Gólfefni: Plastparket er á gólfum, nema á baðherbergi þar sem eru flísar.
Sérgeymsla: Staðsett á 2. hæð.
Þvottahús: Sameiginlegt á sömu hæð.
Vagna- og hjólageymsla: Sameiginleg á 2. hæð.
Stæði í bílageymslu: Á 1. hæð.
Annað: Skv. eignaskiptasamning er íbúð 80,3 fm. og geymsla 5,1 fm., eða samtals 85,4 fm., auk stæðis í bílageymslu.
Nánari upplýsingar veitir: Eggert Ólafsson, löggiltur fasteignasali, í síma 893 1819, eggert@fasteignasalan.is
Viltu frítt verðmat fyrir sölu? Get ég aðstoðað þig við sölu eða leigu íbúðar þinnar? Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Fasteignasalan Bær því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi 0,4 - 0,8% hjá einstaklingum og 1,6% hjá lögaðilum af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá, sjá nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. kauptilboð.