Hafsteinn Þorvaldsson fasteignasali ásamt Fasteignasölunni Bæ kynna í einkasölu: Snyrtilegt einbýli 82 fm, byggt úr timbri árið 2008. Húsið stendur á 11.085 fm eignalóð í Tjarnarbyggð rétt hjá Selfossi. Að utan er húsið klætt með málaðri viðarklæðningu og járn er á þaki. Talsvert stór timburverönd er við húsið og er þak hússins yfir stórum hluta hennar. Húsið afhendist við kaupsamning.Nánari lýsing: Tvö góð svefnherbergi eru í húsinu, fataskápur í öðru þeirra. Forstofa með hillum en yfir forstofu er niðurtekið loft þar sem útbúin hefur verið geymsla. Borðstofa-, stofa og eldhús í opnu og björtu rými og úr því er tvöföld hurð út á verönd. Í eldhúsi er snyrtileg innrétting með góðu skápaplássi. Flísalagt baðherbergi með upphengdu wc, innréttingu og sturtu. Þvottahús með sérinngangi af verönd en einnig er gert ráð fyrir að hafa þvottavél á baðherbergi.
Á gólfum er nýtt harðparket og húsið er kynnt með svæðaskiptum gólfhita. Upptekið loft í flestum rýmum með viðarlituðum loftaþiljum með innfeldri lýsingu.
Í alla staði vel skipulögð og snyrtileg eign. Nánari upplýsingar veitir Hafsteinn Þorvaldsson viðskiptafræðingur og löggiltur fasteigna,- og skipasali s. 891-8891 og 512-3400, hafsteinn@fasteignasalan.is
,,Okkar fagmennska eru þínir hagsmunir" Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati. (0,4% fyrstu kaup, 1,6% lögaðilar)
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar, almennt 0.5 - 1.5 % af höfuðstól skuldabréfs, Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. Kauptilboð